“
Lindex opnaði í Smáralind í Nóvember 2011 þegar rúmlega 12 þúsund manns heimsóttu verslunina á þremur dögum og þurfti að loka versluninni tímabundið í kjölfarið þar sem birgðir til þriggja vikna seldust upp á einni helgi. Opnunin var ein stærsta opnunarhelgi í íslenskri verslunarsögu og var þá jafnframt stærsta opnun í 60 ára sögu Lindex sem er með um 430 verslanir víðs vegar um evrópu.
Við slíkt álag er nauðsynlegt að afgreiðslukerfi verslunarinnar sér einfalt og fljótlegt í notkun og nógu áreiðanlegt til að ráða við allan þennan fjölda viðskiptavina.
dk hugbúnaður hefur reynst okkur einkar góður samstarfsaðili allt frá því við opnuðum verslunina í Smáralind. Fagmennska og hjálpsemi starfsfólks fyrirtækisins er til fyrirmyndar og þá hefur öryggistilfinningin sem fylgir því að hafa áreiðanlegt afgreiðslukerfi séð til þess að við getum einbeitt okkur með heilum hug að því að byggja upp reksturinn.
Albert Þór Magnússon, Umboðsaðili Lindex á Íslandi
Lindex
“
Nútímaleg kaffitería þar sem áhersla er lögð á úrvals hráefni til að tryggja hámarks gæði.
Með dkVistun getum við nálgast sölugögn úr bakvinnslu dk POS afgreiðslukerfisins á auðveldan hátt, hvenær sem okkur hentar og þannig öðlast heildstæðari yfirsýn yfir reksturinn.
Elís Árnason, framkvæmdarstjóri
Café Adesso
“
Grant Thornton er framsækið og leiðandi endurskoðunarfyrirtæki sem var stofnað í árslok 1989 og hefur verið í stöðugum vexti allar götur síðan. Fyrirtækið hefur ávallt lagt mikla áherslu á að veita faglega og persónulega þjónustu á sviði fjármála og viðskipta og þannig aðstoða viðskiptavini sína við að ná markmiðum sínum.
Grant Thornton hefur unnið í nánu samstarfi við dk hugbúnað allt frá árinu 2000 og hefur átt ríkan þátt í að gera dk Viðskiptahugbúnað að jafn öflugri lausn og hann er í dag.
Við höfum átt einstaklega gott samstarf við dk hugbúnað til fjölda ára. Við höfum unnið náið með fyrirtækinu við þróun fjárhagshluta dk Viðskiptahugbúnaðar og dk Framtals en við notum kerfið fyrir alla okkar starfsemi auk þess að bjóða upp á aðgang fyrir viðskiptavini okkar í gegnum dkVistun. Auk bókhaldshlutans hefur verkbókhaldskerfi dk reynst okkur afar vel og notum við það til að halda utan um allar okkar tímaskráningar.
Theodór S. Sigurbergsson, Grant Thornton
Grant Thornton
“
J.S. Gunnarsson er heildsala með fatnað, skó, sundfatnað ofl.
dk hugbúnaður sér okkur fyrir heildarlausn í hugbúnaði og hýsingu ásamt því að sjá um rekstur tölvukerfis okkar frá A-Ö. Þetta gerir okkur kleift að einbeita okkur að okkar kjarnastarfsemi og efla tengsl við birgja og viðskiptavini.
Heiða Gunnarsdóttir, fjármálastjóri
J.S. Gunnarsson hf
“
Árið 2008 tók Sjónlag upp dk hugbúnað fyrir starfsemi fyrirtækisins. Við völdum dk hugbúnað vegna þess hve mikla breidd dk hugbúnaður hefur í viðskiptalausnum og vegna afspurnar af góðri þjónustu og ráðgjöf.
dk hugbúnaður hefur vaxið með fjölbreyttri starfsemi okkar. Við erum ánægð með bókhaldshugbúnaðinn, verslunarkerfið og ekki síst þjónustuna þar sem að við höfum fengið lausn allra okkar mála hverju sinni á skjótan og öruggan hátt.
Guðrún Antonsdóttir, skrifstofustjóri
Sjónlag