Opnunartími þjónustu
Ráðgjafadeild er opin frá 09.00 til 16.00 alla virka daga. Hjá ráðgjafadeild geta viðskiptavinir fengið alla almenna þjónustu við dk viðskiptahugbúnað.
Athugið að viðskiptavinir með þjónustusamning hafa forgang á þjónustu hjá dk hugbúnaði
Hafa samband
Margar leiðir standa þér til boða þegar kemur að því að hafa samband við ráðgjafadeildina. Þú getur meðal annars:
- Skráð þjónustubeiðni hér á síðunni eða sent tölvupóst á hjalp (hja) dk.is
- Hringt í síma 510 5800 og við skráum niður þjónustubeiðni þína
- Leyft okkur að taka yfir skjáinn hjá þér og aðstoða í fjartengingu
- Fengið okkur í heimsókn til þín
Fjartenging, heimsóknir og önnur vinna ráðgjafa dk við gögn fyrir viðskiptavini er ávallt útskulduð.
Vinsamlegast athugið að gjald er tekið fyrir þjónustubeiðnir hafi fyrirtæki þitt ekki þjónustusamning.
Kostnaður
Vinsamlegast hafðu í huga að kostnaður við þjónustu er eftirfarandi:
- Fjartenging: 1 klst.
- Útkall: 2 klst.
Neyðarþjónusta dk
Ef þig vantar aðstoð fyrir utan opnunartíma dk hugbúnaðar getur þú haft samband við neyðarþjónustu okkar.
Númer neyðarþjónustu er: 510 5800
Athugið að kostnaður vegna símaþjónustu, tengingu við fjarþjónustu eða útkalls neyðarþjónustu er:
- Símaþjónusta lágmark: 1 klst.
- Fjarþjónusta lágmark: 2 klst.
- Við útkall lágmark: 4 klst.
Ertu með þjónustusamning?
Gjald er tekið fyrir símtöl og þjónustubeiðnir fyrir þá sem ekki eru með þjónustusamning.
Með þjónustusamningi hjá dk hugbúnaði eru símtöl og aðstoð í gegnum tölvupóst á dagvinnutíma innifalin ásamt 15% afslætti af allri vinnu.
Smelltu hér ef þú vilt fá tilboð í þjónustusamning fyrir þitt fyrirtæki.
Ákveðnir þjónustuþættir og viðbætur falla ekki undir þjónustusamning.
Leiðbeiningar og hjálparefni
Allt um leiðbeiningar, handbækur, kynningarefni og greinar fyrir kerfiseiningar dk Viðskiptahugbúnaðar og dk POS hér.
Tenging við skýið
Ýmsar leiðbeiningar varðandi tengingu við skýið
Uppfærslur af kerfum
Allar uppfærslur af kerfum dk hugbúnaðar: uppfærslur
Námskeið
Reglulega eru haldin námskeið fyrir notendur dk hugbúnaður. Stundaskrá og nánari lýsing hér.


Fjarþjónusta
Með fjarþjónustu dk getur þjónustufólk dk hugbúnaðar tengst tölvu viðskiptavina yfir vefinn.
Þetta flýtir oft fyrir úrlausn vandamála og jafnast á við að fá þjónustumann á staðinn.
Sjá nánar um þjónustudeild dk.
- Fyllsta öryggis er gætt og öll samskipti eru dulkóðuð
- Gögn fara einungis á milli með samþykki viðskiptavinar
- Ráðgjafar geta aldrei tengst án samþykkis viðskiptavinar
Er einhver kostnaður af fjarþjónustu?
Þar sem fjarþjónusta jafnast á við að fá þjónustumann á staðinn er kostnaður við fjartengingu eftirfarandi:
- Fjarþjónusta lágmark: 1 klst.
- Útkall lágmark: 2 klst.
Smelltu hér til að fara á fjarþjónustuvefinn
Þjónustubeiðni
Sendu okkur þjónustubeiðni ef þig vantar aðstoð
Hægt er að gera þetta á tvo vegu, annað hvort með því að senda tölvupóst á hjalp@dk.is eða fylla út formið hér að neðan.
Þegar þjónustubeiðni er skráð er mikilvægt að láta nákvæma lýsingu á vandamálinu. Þannig er hægt að aðstoða á sem skjótastan hátt.
Skráning þjónustubeiðnar flýtir fyrir þjónustu:
- Verknúmeri er úthlutað þar sem hægt er að fylgjast með hvar málið er statt
- Beiðni fer beint inn í þjónustukerfi. Þar er haldið er utan um öll vandamál sem komið hafa upp og lausnir við þeim
- Þannig býrðu til hagkvæman samskiptavettvang við þjónustudeild dk hugbúnaðar
Þeir sem ekki eru með þjónustusamning greiða fyrir símtal og þjónustubeiðni.
Senda þjónustubeiðni
Lausnir og þjónusta
Margvíslegar lausnir og þjónustur eru í boði fyrir notendur kerfisins. Einnig er mikill fjöldi íslenskra fyrirtækja sem bjóða upp á margvíslegar tengingar og lausnir fyrir dk viðskiptahugbúnað.