Hér eru allar leiðbeiningar varðandi tengingu við skýið (dk Vistun). Uppsetning fyrir Windows tölvur, Mac tölvur og spjaldtölvur. (Click here for the English version)
Windows tölvur
Fyrir Windows tölvur, þarf einungis að setja upp hugbúnað fyrir tengingu, sem sækja má hér. Leiðbeiningar fyrir Windows notendur eru á myndbandi hér til hliðar.
Til að setja upp tengingu við skýið (dk Vistun) þarf einungis að setja upp þennan hugbúnað. Fylgið leiðbeiningum hér fyrir neðan. Ekki er þörf á frekari uppsetningu.
Notar sjálfgefna slóð sem gefin er upp hér að neðan
Samþykkja skilmála
Smella á INSTALL
Þegar uppsetningu er lokið þá opnast viðmótið hér að neðan.
Customer Number: Slá inn kennitölu dk leyfishafans og ýta á „Enter“
Nú birtist skráður leyfishafi fyrir neðan og dkVistun tengill verður til á skjáborðinu til að tengjast
Þegar tengst er þarf að setja dkVistun\ fyrir framan notandanafnið
Sé smellt á Options þá er hægt að velja um:
Enable Multiple Display | Birta dk á öllum skjám
Redirect Drives | Taka með öll drif yfir í dkVistun
Always ask for password | Ekki vista lykilorð
Ef þarf að eyða út öllum tengingum er smellt á „Reset“
Til að virkja breytingar (sé hakað í eða úr) þá er nóg að smella á „Refresh“
Að lokum má loka þessum glugga og nota tengilinn á skjáborðinu til að tengjast inn
MAC
Uppsetning fyrir Apple tölvur
Sláðu inn kennitölu dk leyfishafans hér fyrir neðan til að fá tengiskrá
Ef þú ert nú þegar með Microsoft Remote Desktop eða Jump Desktop
Velja þarf annað hvort Microsoft Remote Desktop eða Jump Desktop uppsetningu og fylgja leiðbeiningum hér fyrir neðan.
Við mælum með að nota Microsoft Remote Desktop með Easyprint!
EasyPrint | Remote Desktop
EasyPrint í gegnum Microsoft Remote Desktop. Þetta er einföld prentlausn sem styður illa t.d. fjöldaprentun sölureikninga en virkar fyrir aðrar almennar prent aðgerðir.
Microsoft Remote Desktop 10
Setja upp forritið Microsoft Remote Desktop 10 sem er hægt að finna í App Store.
Þegar uppsetningu á því er lokið er forritið opnað.
Hægt er að stöðva hér og sækja tengiskrá efst á síðunni með því að slá inn kennitölu dk leyfishafans. Ef handsetja á tengingu upp skal halda áfram neðar í leiðbeiningunum.
Til að setja upp tengingu er farið í „Connections“, „Import Desktops…“ og skráin sem hlaðið var niður valin.
Þá verður til tenging undir Saved Desktop. Til að ræsa hana er tvísmellt
Við fyrstu tengingu þarf að slá inn dkvistun\notendanafn og lykilorð og velja „Continue“.
Ef handsetja á tengingu upp, haldið áfram hér:
Smellt er á „Add Desktop“
Þar þarf að setja inn:
PC name: Það umhverfi sem tengjast á við. Ef ekki er vitað hvaða umhverfi á að tengjast er hægt að ná í skrá efst á síðunni eða hafa samband við dk.
User account: dkvistun\notendanafn
Friendly name: dkVistun
Gateway: Smella á „Add new gateway“ (sjá næstu mynd).
Notendaupplýsingar eru settar inn þar fyrir neðan.
Í „Add new gateway“ eru settar inn Gateway upplýsingar:
Gateway name: securecloud.dkvistun.is
Server: securecloud.dkvistun.is Username: dkvistun\notandanafn
Password: Lykilorð notanda
Næst þarf að smella á flipann „Devices & Audio“ og setja hak undir Redirect við „Printers“ til að prentarar tengist.
Ef taka á með rafræn skilríki („Smart cards“) og klippiborð („Clip board“) hakið einnig við það.
Ef tengja á möppu af tölvunni yfir í dkVistun þá þarf að haka í „Redirect folders“
Þegar uppsetningu er lokið verður til tenging sem smellt er á til að tengjast dkVistun.
ThinPrint | Jump Desktop
Thinprint með Jump Desktop er lausn sem styður betur við fjölda/sérhæfða prentun. ThinPrint er eingöngu með stuðning við Jump Desktop sem þarf að kaupa í App Store.
Jump Desktop og Thinprint
Byrja þarf að setja upp ThinPrint sem sér um að tengja prentara með yfir í dkVistun. Til að að sækja það smelltu hér fyrir neðan.
Thinprint uppsetningar forrit
Thinprint for MAC
Næst þarf að setja upp forritið Jump Desktop sem er hægt að finna í App Store.
Þegar uppsetningu á því er lokið er forritið opnað og smellt á plúsinn á stikunni til að stofna tengingu. Þar þarf að setja inn undir „Host“ og „Name“ það umhverfi sem tengjast á viðog smella á „Add„.
Ef ekki er vitað hvaða umhverfi á að tengjast er hægt að ná í skrá efst á síðunni eða hafa samband við dk.
Þarf svo að hægri smella á tenginguna og velja „Edit“. Þegar þangað er komið þarf að bæta við RD Gateway sem er neðst á stikunni vinstra megin. Smella á plúsinn og setja inn upplýsingar um Gateway:
Host: Security.dkvistun.is
Ekki þarf að setja inn notendaupplýsingar þarna. Passa þarf að velja Security.dkvistun.is fyrir tenginguna og smella á „Save“.
Til þess að prentara starfi eðlilega þarf að opna „Sharing“ úr stikunni og taka hakið „Printers“. Þá á tenginginn að vera uppsett og klár. Í fyrstu tengingu þarf að setja inn notendanafn og lykilorð með „dkVistun\“ fyrir framan eins og myndin fyrir neðan sýnir.
Sláðu inn kennitölu dk leyfishafans hér fyrir neðan til að fá tengiskrá
Lausnir og þjónusta
dk býður upp á margvíslegar lausnir og þjónustu fyrir notendur kerfisins. Einnig er mikill fjöldi íslenskra fyrirtækja sem bjóða upp á margvíslegar tengingar og lausnir fyrir dk viðskiptahugbúnað.
Office 365
Ein af vinsælustu skýjalausnum heimsins er Office 365. Lausnin gerir notendum kleift að vinna hvar og hvenær sem er, einfaldar samvinnu og hefur sannað sig í aukinni framleiðni hjá starfsfólki sem notar Office 365.
Sjá nánar:
Vefþjónusta
Fjöldi þjónustufyrirtækja hafa skrifað tengingar við dk í gegnum vefþjónustur dk. Vefþjónustan hentar alls kyns sjálfvirkum vinnslum svo sem heimasíðum, vefverslunum, gagnagreiningum/teningum, margvíslegum bókunarkerfum, eignarumsýslukerfum og fleira.
Sjá nánar:
Námskeið
Öll helstu undirstöðuatriði dk kerfisins eru kennd á námskeiði dk hugbúnaðar. Einnig er farið er í helstu vinnslur dk kerfisins. Námskeiðin eru góður grunnur til að byrja með nýtt kerfi.
Sjá nánar:
Leiðbeiningar
Hér má finna leiðbeiningar, handbækur fyrir helstu kerfiseiningar, notendafræðsla í formi stuttra myndbanda og kynningarefni.
Sjá nánar:
Lausnatorg
Á lausnatorgi dk má sjá yfirlit þeirra fyrirtækja sem bjóða upp á tengingu og lausnir fyrir dk viðskiptahugbúnað. Vefverslanir, sérkerfi ýmiskonar, bókunarkerfi, innheimtulausnir og tengingar við flutningsaðila.