dk fyrir endurskoðunar- og bókhaldsstofur
dk viðskiptahugbúnaðurinn er alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi, sérlega hentugt fyrir bókara, bókhaldsstofur og endurskoðunarstofur. Hann er að fullu þróaður á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður og er í notkun hjá nánast öllum þessum aðilum.
Hagkvæm lausn fyrir íslensk fyrirtæki
Afar auðvelt er að taka kerfið í notkun. Kerfið kemur nánast að segja full uppsett með leiðbeiningum. Með kerfinu fylgja full uppsett fyrirtækjaform (15 stykki). Hvert fyrirtækjaform inniheldur tilbúinn bókhaldslykil með tengingum við undirkerfin, uppsettan rekstrar- og efnahagsreikning ásamt sundurliðunum og sjóðstreymi. Með kerfinu fylgir mjög öflugt hjálparkerfi sem aðstoðar við að stofna ný fyrirtæki, ákvarða tegund rekstrar og þá um leið að velja rétt fyrirtækjaform. Kerfið sér síðan um að ganga frá öllum tengingum undirkerfa við valið bókhaldslyklasett.
Öflug greiningartól
Í öllum kerfiseiningum dk eru að finna öflug greiningartól, hvort sem unnið er með fjárhag, viðskiptamenn, lánardrottna, sölu, birgðir, innkaup, verk eða laun. Greiningarvinnslurnar virka frá upphafi og ekki er þörf á langri og erfiðri uppsetningarvinnu með tilheyrandi tilraunum og prófunum.