fbpx Skip to main content

Alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi í skýinu

Bókhalds- og sölukerfi í áskrift, með kerfinu fylgja öflug greiningartól, uppflettingar og skýrslur. Margvíslegar sérlausnir og séraðlaganir í boði fyrir stærri fyrirtæki, sjá nánar hér. Verið í sambandi og fáið ráðgjöf frá sérfræðingum dk.

Fá ráðgjöf

    Nafn ( þarf )

    Netfang ( þarf )

    Símanúmer

    Fyrirtæki

    Fyrirspurn þín ..

    Enginn stofnkostnaður

    Afar auðvelt er að taka kerfið í notkun. Enginn stofnkostnaður með grunnuppsetningu kerfisins. Með kerfinu fylgja full uppsett fyrirtækjaform (15 stykki). Hvert fyrirtækjaform inniheldur tilbúinn bókhaldslykil með tengingum við undirkerfin, uppsettan rekstrar- og efnahagsreikning ásamt sundurliðunum og sjóðstreymi.

    Öflugar greiningarvinnslur og margvíslegar viðbætur

    dk viðskiptahugbúnaðurinn er öflugt alhliða viðskipta- og upplýsingakerfi. Kjarninn í dk er bókhaldskerfi með fjárhagbókhaldi, öflugum greiningum og ársreikningavinnslum. Bæta má við kerfiseiningum að vild eins og skuldunautakerfi, lánardrottnakerfi, sölureikningakerfi, birgðakerfi, launakerfi, verkbókaldskerfi og afgreiðslukerfi. Einnig hefur dk þróað mörg smáforrit sem virka sem viðbót við bókhaldskerfið, beint í síma eða spjaldtölvu. Öll kerfi og viðbætur við dk er hægt að fá í áskrift.

    Vinsælasti viðskiptahugbúnaðurinn í yfir 20 ár

    dk hugbúnaður er fullkomin skýjalausn, vistuð í einu fullkomnasta hýsingarumhverfi á Íslandi með ISO vottun. dk er útbreiddasta bókhaldskerfi landsins, að fullu þróað á Íslandi og hefur verið vinsælasti viðskiptahugbúnaðurinn í yfir 20 ár og er í notkun hjá meira en 6.500 fyrirtækjum.

    Öflug skýjaþjónusta

    dk hugbúnaður er með öfluga hýsingardeild og rekur skýjaþjónustu fyrir stór og smá fyrirtæki. Yfir 4.500 fyrirtæki nýta sér þessa þjónustu og er dk stærsti hýsingaraðili SPLA-Microsoft lausna á Íslandi. dk býður upp á heildarlausn í hýsingu forrita og gagna. Notendur kerfisins tengjast þjónustunni gegnum internetið, hvaðan sem er úr heiminum sem skapar tvímælalaust hagræði.

    Einfalt er að opna aðgang fyrir endurskoðanda eða bókhaldsstofu sé þess óskað. Þannig geta fyrirtæki og bókarar unnið saman rafrænt. Viðskiptavinir dk hugbúnaðar sem ekki eru í kerfishýsingu geta haft samband við dk og fengið bókhaldsgögnin flutt í skýið hjá dk.

    Tegundir fyrirtækja sem nýta sér dk viðskiptahugbúnaðinn eru m.a.:

    Auglýsingastofur, Apótek, Arkitekta- og verkfræðistofur, Bakarí, Bílaleigur, Bókhaldsstofur, Búrekstur (bændur), Endurskoðunarstofur, Ferðaþjónusta, Félagasamtök, Fiskverkanir, Framleiðslufyrirtæki, Gistihús, Hótel, Inn- og útflutningsfyrirtæki, Lögfræðistofur, Nýsköpunarfyrirtæki, Stéttarfélög, Tæknifyrirtæki, Útgerðir, Veitingastaðir, Verkstæði, Verktakar, Verslanir og Þjónustufyrirtæki.

    Close Menu

    dk - Íslenskar viðskiptalausnir