Persónuverndarstefna dk:
Persónuvernd er mikilvæg fyrir dk. Við leggjum okkur fram um verndun persónuupplýsinga hvort sem um ræðir persónuupplýsingar starfsmanna og viðskiptavina okkar.
Helstu persónuverndarreglur dk:
Persónuupplýsingar eru unnar í samræmi við lög og á sanngjarnan hátt.
Persónuupplýsingar eru aðeins varðveittar í sérstökum skýrum og lögmætum tilgangi og þegar notkun þeirra samræmast tilgangi vinnslunnar.
Aðeins er safnað viðeigandi persónuupplýsingum og þess gætt að þær séu ekki umfram það sem nauðsynlegt telst.
Persónuupplýsingar eru ekki varðveittar lengur en nauðsyn krefur.
Þess skal gætt að Persónuupplýsingar séu ávallt nákvæmar, réttar og reglulega uppfærðar.
Afrit af persónuupplýsingum í okkar vörslu eru gerð aðgengileg viðkomandi skráðum einstaklingum að ósk þeirra í samræmi við gildandi lög á hverjum tíma.
Öryggi persónuupplýsinga er tryggt með tæknilegum- og skipulagsráðstöfunum, ráðstöfunum sem taka mið af eðli upplýsinganna og verndun á friðhelgi einkalífs.
Tilgangur vinnslu:
dk vinnur persónuupplýsingar bæði sem ábyrgðaraðili starfsmanna og sem vinnsluaðili fyrir viðskiptavini. Við vinnslu persónuupplýsinga tekur dk ávallt mið af þeim meginreglum laga sem gilda um vinnslu persónuupplýsinga.
Heimild til vinnslu:
dk vinnur persónuupplýsingar í þeim tilgangi að uppfylla samningsbundnar skyldur sínar við viðskiptavini sína eða vegna lagaskyldna sem hvíla á dk.
Persónuupplýsingar sem dk vinnur:
Sem hluti af viðskiptamannaþjónustu okkar og sem lið í að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu söfnum við upplýsingum um tengiliði þeirra fyrirtækja og stofnanna sem eru í viðskiptasambandi við okkur. Þessar upplýsingar eru nafn, tölvupóstfang og símanúmer.
Sem ábyrgðaraðili vinnur dk upplýsingar um starfsmenn, umsækjendur og verktaka. Vinnslan byggir á lögum og reglum, samþykki einstaklinga, samningum og lögmætum hagsmunum.
Sem vinnsluaðili vinnur dk persónuupplýsingar í samræmi við vinnslusamninga við ábyrgðaraðila í viðskiptum við dk.
dk heldur utan um tengiliðaupplýsingar viðtakenda markaðsefnis í þeim tilgangi að miðla upplýsingum til samstarfsaðila. Dk heldur utan um tengiliðaupplýsingar í gegnum skýjaþjónustu við þriðju aðila sem kallast mailchimp. Þessi þjónusta gerir dk kleift að greina hegðun þeirra tengiliða sem fá frá okkur tölvupóst í markaðslegum tilgangi. Tilgangur dk að greina þessi gögn er fyrst og fremst til að gera dk kleift að gera upplifun viðskiptavina og samtarfsaðila betri.
Viðtakendur geta hvenær sem er óskað eftir að vera fjarlægðir af þessum lista. Beiðni um slíkt skal berast personuvernd@dk.is.
Réttindi skráðra einstaklinga:
dk virðir rétt einstaklinga sem treysta fyrirtækinu fyrir persónuupplýsingum sínum og leggur því áherslu á að auðvelda skráðum einstaklinglinum að framfylgja réttindum sínum gagnvart dk með því að:
• Upplýsa um vinnslu persónuupplýsinga á skýran, skiljanlegan, gagnsæjan og aðgengilegan hátt.
• Hafa upplýsingar um tengilið fyrirtækisins aðgengilegar öllum skráðum einstaklingum.
• Þekkja og upplýsa um tilgang og lagagrundvöll vinnslu okkar.
• Þekkja og upplýsa hvar vinnsla upplýsinga fer fram.
• Þekkja og upplýsa um viðtakendur eða flokka viðtakanda persónuupplýsinga sinna.
• Þekkja og upplýsa hversu lengi persónuupplýsingar skráðra einstaklinga verða geymdar.
• Þekkja og upplýsa um réttindi skráðra einstaklinga þ.e. rétt til aðgangs, leiðréttingu, flutnings og réttinn til að gleymast.
• Veita afrit af persónuupplýsingum á formi sem hentar til gagnaflutnings.
• Gera skráðum einstaklingum kleift að afturkalla samþykki til vinnslu hvenær sem er.
• Þekkja og upplýsa hvenær skráðum einstaklingum ber lagaleg skylda til að veita okkur persónuupplýsingar.
• Upplýsa skráða einstaklinga ef notuð er sjálfvirk ákvarðanataka við vinnslu persónuupplýsinga.
• Auðvelda skráðum einstaklingum að leita réttar síns með því að veita allar nauðsynlegar upplýsingar til eftirlitsstofnunar.
Miðlun persónuupplýsinga:
dk mun ekki miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila nema að eftirfarandi uppfylltum skilyrðum:
• Fyrir liggi upplýst samþykki frá skráðum einstaklingi
• dk sé það skylt samkvæmt lögum
• dk sé gert skylt að afhenda persónuupplýsingar samkvæmt dómsúrskurði. Í öllum tilfellum verður öryggi upplýsinganna tryggt og þess gætt að miðlun fari eftir ákvæðum laga hverju sinni.
Varðveisla persónuupplýsinga:
dk varðveitir persónuupplýsingar starfsmanna sem ábyrgðaraðili á meðan ráðningarsamningur við einstakling er í gildi og í samræmi við önnur lög í landinu sem gera ráð fyrir varðveislu persónuupplýsinga starfsmanna.
dk varðveitir persónuupplýsingar sem vinnsluaðili eins lengi og vinnslusamningar kveða á um og í samræmi við lög eru gilda um hverja vinnslu fyrir sig.
dk gætir meðalhófs við öflun persónuupplýsinga og gætir þess að varðveita aldrei persónuupplýsingar lengur en þörf er á í samræmi við tilgang vinnslunnar.
dk áskilur sér rétt til varðveislu upplýsinga eftir að samningssambandi lýkur ef dk telur að um lögmæta hagsmuni sé ræða t.d. ef til þess kemur að fyrirtækið telji sig þurfa að leggja fram réttarkröfu eða verða við kröfu.
Öryggi persónuupplýsinga:
dk leggur mikla áherslu á öryggi við vinnslu persónuupplýsinga og hefur í því augnamiði innleitt skipulags- og tæknilegar öryggisráðstafanir sem tryggja trúnað, réttleika og tiltækileika gagna og kerfa.
Ennfremur leggur dk ríka áherslu á upplýsinga- og gagnaöryggisvernd með því að tryggja vitund starfsmanna fyrir öryggi gagna. Allir starfsmenn dk fá þjálfun í upplýsingaöryggi og undirgangast, við upphaf starfs síns, persónuverndarstefnu dk, upplýsinga- og gagnaverndarstefnu ásamt því að undirrita trúnaðar og þagnareið.
Ef upp kemur öryggisbrot þar sem möguleiki er að persónuupplýsingar hafi komist í hendur óviðkomandi aðila eru slík brot meðhöndluð samkvæmt 27. gr laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Vefkökur:
dk notar vefkökur til bjóða þeim einstaklingum sem heimsækja vefsíðu okkar betri reynslu af því að vafra um netið, greina umferð á vefsetur auðkenna innihald og þjóna markvissum auglýsingum. Einstaklingar geta lesið um hvernig dk notar vefkökur og hvernig þeim er stjórnað með því að skoða tengil hér. Með því að ýta á samþykki og með því að nota áfram þetta vefsetur, samþykkir þú notkun okkar á vefkökum.