
Sala á Neyðarkallinum 2021 er byrjuð hjá björgunarsveitum landsins. dk hugbúnaður hvetur alla landsmenn að taka vel á móti sölufólki björgunarsveitanna sem verður grímuklætt að þessu sinni við söluna.
dk hugbúnaður keypti Neyðarkallinn af björgunarsveitinni Súlur á Akureyri að þessu sinni. Brynjar Tryggvason forstöðumaður útibús dk hugbúnaðar á Akureyri tók á móti Neyðarkallinum nú á dögunum.
Starfsfólk dk hugbúnaðar óskar björgunarsveitum landsins velfarnaðar við söluna.
Myndir: Björgunarsveitin Súlur @Sulurbjorgunarsveitin