fbpx Skip to main content

dk Pos afgreiðslukerfið

Heildarlausn í afgreiðslukerfum

dk POS afgreiðslukerfið er heildarlausn í afgreiðslukerfum sem byggir á nýjustu tækni þar sem vinnsluhraði er með því besta sem gerist

Viðmótið er notendavænt og er afar auðvelt að læra á kerfið. Einfaldar aðgerðir tryggja lágmarksafgreiðslutíma sem skilar sér í betri þjónustu.

Verslanir og þjónusta

Kerfið hentar jafnt verslunum með einn eða fleiri afgreiðslukassa sem stórum verslanaheildum.  Engar takmarkanir eru á fjöldi kassa. Kerfið hentar vel fyrir allar tegundir verslana og þjónustu.

Afgreiðslukerfið vinnur sem sjálfstæð eining en er um leið hluti af viðskiptahugbúnaði okkar og er einfalt að samkeyra gögn, svo sem söluuppgjör, birgðauppfærslu og fleira.

Hægt er að nálgast allar vinnslur, uppflettingar og greiningar þar sem kerfið er beintengt við dk viðskiptahugbúnaðinn en í því felst gríðarlegur vinnusparnaður.

dk Pos sjálfsafgreiðslulausnir

Hægt er að fá sérsniðnar sjálfsafgreiðslulausnir fyrir verslun og þjónustu með dk Pos.

Sjálfsafgreiðsla er farin að ryðja sér til rúms á Íslandi. dk hugbúnaður er með sérsniðnar sjálfsafgreiðslulausnir fyrir verslun og þjónustu.

Sjálfsafgreiðslan er einföld og fljótleg leið fyrir þá sem eru á hraðferð. Hún hjálpar til við að taka á álagspunktum í verslun og eykur ánægju viðskiptavina.

sjálfsafgreiðsla fyrir verslanir

dk Pos snjalltækjalausnir

dk Pos App

Nýjasta afgreiðslukerfið frá dk er dk Pos App.  Afgreiðslukerfið er ætlað Android snjalltækjum og nýjustu gerðum snjallposa.

Sjá meira um dk Pos App afgreiðslukerfið

dk iPos afgreiðslukerfi

dk iPos afgreiðslukerfið er fyrir snjalltæki frá Apple.  Einfalt og þægilegt að klára sölu eða ganga frá pöntun í iPad spjaldtölvu.

Sjá meira um dk iPos afgreiðslukerfið

Helstu kostir dk Pos

Íslenskt kerfi samtengt dk viðskiptahugbúnaði. Hver afgreiðslukassi er sjálfstæð eining sem virkar þótt nettenging rofni.

dk Pos afgreiðslukerfið býður upp á gjafabréf og inneignarnótur, heimalán, innborganir, frátektir og miðsölur.

Öflugt birgða- og viðskiptamannakerfi með margvíslegum afsláttamöguleikum. Hægt að tengja flestar gerðir posa við kerfið. Einfalt uppgjör í dagslok og allar færslur skila sér í bókhaldið sjálfkrafa.

Hentar mjög vel fyrir allar gerðir verslana, þar sem krafa er um hraða og örugga afgreiðslu.

Sjálfsafgreiðsla með dk Pos

Hægt er að fá sérsniðnar sjálfsafgreiðslulausnir fyrir verslun og þjónustu.

Heilbrigðisþjónusta

Eitt af þeim fyrirtækjum sem hafa tekið upp sjálfsafgreiðslukerfi dkPos, til að stytta biðraðir á háannatíma, er Læknavaktin Austurveri.

Sjálfsafgreiðslukerfið stóreykur hraða við innskráningu viðskiptavina. dk Pos sjálfsafgreiðslukerfið er algerlega sjálfvirkt og tengist m.a. Sjúkratryggingum Íslands og Sögu sjúkraskrárkerfinu út frá kennitölu viðskiptavinar.

Þegar viðskiptavinur hefur lokið við að greiða komugjald í Ingenico posa frá Valitor, prentast út kvittun með númeri sem lesið er frá Qmatic númerakerfinu frá Edico. Það tryggir að viðskiptavinur verði afgreiddur í réttri röð og hann getur séð hvar hann er staðsettur í röðinni á Qmatic númeratöflu í komusal Læknavaktarinnar.
Jafnframt er bókunin komin inn í sjúkraskrárkerfið Sögu frá Origo. Ekki er nauðsynlegt að vera með dýran vélbúnað, einungis er notast við venjulegan afgreiðsluvélbúnað eins og snertiskjátölvur, kvittanaprentara og posa.

Sjálfsafgreiðslukerfi, dkpos, læknavaktin
sjálfsafgreiðsla fyrir verslanir

dk Pos sjálfsafgreiðsla og verslanir

Sjálfsafgreiðslan er einföld og fljótleg leið fyrir þá sem eru á hraðferð. Hún hjálpar til við að taka á álagspunktum í verslun og eykur ánægju viðskiptavina.

dk Pos sjálfsafgreiðslukerfið fyrir verslanir keyrir á hefðbundnum tölvubúnaði. Afgreiðslutölva með snertiskjá eins og t.d. Toshiba TCx800 afgreiðslutölva frá Origo, kvittanaprentari og strikamerkjalesari. Viðskiptamannaskjár er notaður til upplýsingar fyrir viðskiptamenn og starfsmenn verslunar þegar afgreiðsla á sér stað og því er gott að hafa hann í stærra lagi. 10“ viðskiptamannaskjár hentar mjög vel fyrir almenna sjálfsafgreiðslu.

Hægt er að tengja vildarkerfi og greiðsluposa við sjálfsafgreiðsluna.

Sjá nánar: Lindex tekur upp sjálfsafgreiðslu.

dk Pos er með tengingu við greiðslulausnir fyrir síma

Hægt er að fá tengingu við snjallsímagreiðslur í dk Pos afgreiðslukerfið

Netgíró

netgiro.is

Greiðslulausn sem gerir þér kleift að borga með símanum

Síminn Pay

siminn.is

Greiðslulausn sem gerir þér kleift að borga með símanum

Pei

pei.is

Greiðslulausn sem gerir þér kleift að borga með símanum

Aur

aur.is

Greiðslulausn sem gerir þér kleift að borga með símanum

Kvitt

kvitt.is

Greiðslulausn sem gerir þér kleift að borga með símanum

Nánari lýsing á virkni og notkun kerfis

Útlit að eigin vali

dk POS er afar sveigjanlegt kassakerfi. Hægt er að stilla hnappa eftir óskum, bæta við og eyða eftir þörfum. Nota má lyklaborð, aðgerðalykla og snertiskjá með kassakerfinu. Kerfið býður upp á margs konar virkni og einnig er hægt að bæta við virkni í sérstökum tilfellum ef þörf krefur.

Öryggi í rekstri

Afrit er tekið af hverri afgreiðslu á öllum kössum um leið og hún er framkvæmd, auk þess sem kassarnir sjálfir geyma upplýsingar aftur í tímann. Sjálfstæði dk POS tryggir að afgreiðsla stöðvast ekki þrátt fyrir utanaðkomandi röskun.

Bakvinnslukerfi

Bakvinnslukerfið í dk POS er heildstætt kerfi og hentar nánast öllum tegundum verslana. Bakvinnslukerfið auðveldar verslunarstjórum umsjón með lager og innkaupum auk þess sem auðvelt er að halda utan um verðbreytingar og afslætti.

Sölugreining

Sölugreining er mikilvægur þáttur í rekstri verslana. Notendur dk POS geta fengið skýrslur um sölu á vörum, vöruflokkum, kössum og afgreiðslumönnum. Einnig fylgja með ítarlegar skýrslur um tilboð, birgðir og uppgjör.

Handtölvur

Auðvelt er að nota handtölvur með dk POS afgreiðslukerfinu. Með því að nota handtölvu við vörutalningar, pantanagerð og vörumóttöku má lækka kostnað og spara tíma.

Sjá nánar:
dk handtölvulausn

Framtíðarlausn

dk POS afgreiðslukerfið er framtíðarlausn sem byggir á nýjustu tækni og getur vaxið í takt við aukin umsvif í rekstri. Kerfið er hannað hvort sem er fyrir stakar verslanir með einn, tvo eða þrjá afgreiðslukassa eða fyrir fyrirtæki þar sem notendafjöldi og fjöldi verslana er nánast ótakmarkaður.

Vantar frekari upplýsingar?

Sendu okkur fyrirspurn fyrir frekari upplýsingar eða til að panta kynningarfund

    Nafn ( þarf )

    Fyrirtæki

    Netfang ( þarf )

    Símanúmer

    Fyrirspurn þín ..

    Close Menu

    dk - Íslenskar viðskiptalausnir