fbpx Skip to main content

dk hlaut Jafnvægisvogina 2023

By október 13, 2023október 20th, 2023Fréttir

dk hlaut Gullmerki Jafnvægisvogarinnar annað árið í röð

dk hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2023 og er það annað árið í röð sem fyrirtækið hlýtur þann heiður. dk er þar í hópi 56 fyrirtækja, 11 sveitarfélaga og 22 opinberra aðila. Þau sem hljóta viðurkenningu eru þau félög sem hafa náð að jafna hlutfall kynja í stjórnunarstöðum.

Við hjá dk hugbúnaði erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu í jafnvægisvogarinnar annað árið í röð.

Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra 239 þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim þátttakendum sem hafa náð markmiðunum um 31 á milli ára.

Sjá nánar á vef félags kvenna í atvinnurekstri

Close Menu

dk - Íslenskar viðskiptalausnir